Evrópuleikur Vals í beinni í kvöld
5.9.2010

Valur tekur á móti Iuventa frá Slóvakíu í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð EHF-bikarkeppni kvenna klukkan 20:00 í kvöld í beinni útsendingu hér á SportTV.is. Útsending hefst um tíu mínútum fyrir leik.

Úrslitadagur Ragnarsmótsins
4.9.2010

Í gærkvöld varð ljóst hvaða lið mætast í dag, á úrslitadegir Ragnarsmótsins í handbolta. FH og Valur leika um fimmta sætið klukkan 12:00. Strax að þeim leik loknum eða klukkan 14:00 eigast við HK og Fram í leiknum um þriðja sætið en klukkan 16:00 hefst úrslitaleikur Hauka og Selfoss. Allir leikirnir verða í beinni útsendingu og ólíkt hinum leikjum mótsins mun þulur lýsa því sem fyrir augum ber í dag frá Selfossi.
höldur

Leiðréttur leiktími

Rangur leiktími að úrslitaleikjum Ragnarsmótsins var auglýstur fyrir mótið og því er mikilvægt að koma þeirri leiðréttingu á framfæri að leikirnir á morgun laugardag hefjst klukkan 12, 14 og 16. Leikið er um fimmmta sætið klukkan 12, þriðja sætið klukkan 14 og úrslitaleikurinn er klukkan 16 en ekki er leikið 12, 16 og 18 eins og áður var auglýst.

Næstu útsendingar