Lesa frétt

7.6.2010

Bikdrátturinn í beinni

Í dag verður dregið í 16 liða úrslit Visa bikars karla og kvenna í fótbolta í höfuðstöðvum Knattspyrnusambandsins. Drátturinn sem hefst klukkan 12:00 verður í beinni útsendingu hér á SportTV.is. í karlaflokki eru átta lið úr Pepsí deild karla í pottinum, sex úr fyrstu deild og tvö úr annarri deild. Í kvennaflokki bætast öll 10 lið Pepsí deildar kvenna við þau sex lið sem tryggðu sér sæti í pottinum eftir forkeppni.