SportTV.is vill benda áhorfendum sínum á tvo leiki í Evrópukeppninni í fótbolta sem sendir verða út á
www.livefromiceland.com í kvöld og annað kvöld. Um er að ræða samstarfverkefni SportTV og FH annars vegar og Breiðabliks hins vegar vegna leikja liðanna í Evrópukeppnum nú í vikunni. Í kvöld verður leikur FH og Bate í beinni klukkan 19:15. Hægt er að sjá leikinn gegn vægu gjaldi.
Leikur FH og Bate er liður í forkeppni Meistaradeildarinnar en FH tapaði fyrri leiknum 5-1 og því þarf allt að ganga upp í kvöld til að Hafnarfjarðarliðið komist í næstu umferð. Þó fyrirfram sé ekki mikil spenna í einvíginu er aldrei að vita hvað gerist og ætti því enginn að láta leikinn fram hjá sér fara.
Annað kvöld klukkan 19:15 tekur Breiðablik á móti skoska liðinu Motherwell en Skotarnir sigruðu fyrri leikinn 1-0 og er einvígið því opið upp á gátt.
Kynntu þér málið nánar á
www.livefromiceland.com.