Lesa frétt

22.7.2010

Sjáið Breiðablik - Motherwell

Nú klukkan 19:15 hefst leikur Breiðablik og Motherwell í forkeppni Evrópubikarsins á Kópavogsvelli. Hægt er að sjá leikinn beint á www.livefromiceland.com gegn vægu gjaldi en um er að ræða samstarfsverkefni SportTV og Breiðabliks.

Motherwell vann fyrri leik liðanna 1-0 og því er viðureignin galopin og allt getur gerst. Það er því von á æsispennandi og skemmtilegum leik í Kópavogi en Breiðablik er síðasta íslenska félagsliðið sem getur látið að sér kveða í Evrópukeppninni í ár.