Sjáið Breiðablik - Motherwell 22.7.2010 Nú klukkan 19:15 hefst leikur Breiðablik og Motherwell í forkeppni Evrópubikarsins á Kópavogsvelli. Hægt er að sjá leikinn beint á www.livefromiceland.com gegn vægu gjaldi en um er að ræða samstarfsverkefni SportTV og Breiðabliks.
Evrópukeppnin í fótbolta 21.7.2010 SportTV.is vill benda áhorfendum sínum á tvo leiki í Evrópukeppninni í fótbolta sem sendir verða út á www.livefromiceland.com í kvöld og annað kvöld. Um er að ræða samstarfverkefni SportTV og FH annars vegar og Breiðabliks hins vegar vegna leikja liðanna í Evrópukeppnum nú í vikunni. Í kvöld verður leikur FH og Bate í beinni klukkan 19:15. Hægt er að sjá leikinn gegn vægu gjaldi.
Bikdrátturinn í beinni Í dag verður dregið í 16 liða úrslit Visa bikars karla og kvenna í fótbolta í höfuðstöðvum Knattspyrnusambandsins. Drátturinn sem hefst klukkan 12:00 verður í beinni útsendingu hér á SportTV.is. í karlaflokki eru átta lið úr Pepsí deild karla í pottinum, sex úr fyrstu deild og tvö úr annarri deild. Í kvennaflokki bætast öll 10 lið Pepsí deildar kvenna við þau sex lið sem tryggðu sér sæti í pottinum eftir forkeppni.